11. janúar 2022

Umsóknarfrestur fyrir styrki í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins

Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins til verkefna í þróunarlöndum.

Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins til verkefna í þróunarlöndum. 

Næsti umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 3. febrúar 2022. Sjá auglýsingu hér*.

Sjóðurinn hentar fyrirtækjum í margvíslegum geirum sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum. Þróunarlöndin kalla sjálf eftir samstarfi við atvinnulífið til að þekking og drifkraftur atvinnulífsins nýtist þeim til framþróunar. Þegar styrkhæfni verkefna er metin er sérstaklega horft til áhrifa verkefnanna á sjálfbæra atvinnuþróun í þróunarlandinu, jákvæð umhverfisáhrif, mannréttindi og aukna atvinnuþátttöku kvenna.

Verkefni þarf að framkvæma í samvinnu við samstarfsaðila í þróunarlandi. Styrkurinn getur hæst orðið EUR 200.000 (ca. 26 milljónir ISK) á þremur árum og getur mest orðið 50% af heildarkostnaði verkefnis.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna hér á Heimstorginu og einnig á heimasíðu sjóðsins hjá Utanríkisráðuneytinu.

Nánari upplýsingar um styrkveitinguna núna veitir Auður Edda Jökulsdóttir hjá ráðuneytinu og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir hjá Íslandsstofu.

* Mynd: World Bank Photo Collection

Sjá allar fréttir