16. febrúar 2022

Sendiherra Íslands í Þýskalandi til viðtals

María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Berlín, verður til viðtals þriðjudaginn 22. febrúar.

María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Berlín, verður til viðtals þriðjudaginn 22. febrúar um viðskiptamál, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál þar sem sendiráðið getur orðið að liði. Auk Þýskalands eru Króatía, Pólland, Serbía og Svartfjallaland í umdæmi sendiráðsins.

Fundirnir fara fram í gegnum Teams og hægt er að bóka viðtal með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

BÓKA VIÐTAL

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir, adalheidur@islandsstofa.is


Sjá allar fréttir