Dagsetning:
21. maí 2024
Vinnustofur í Bandaríkjunum
Íslandsstofa stendur fyrir vinnustofum í Bandaríkjunum fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu dagana 21.- 23. maí 2024. Á vinnustofunum gefst fyrirtækjum tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum við ferðaþjónustuaðila á staðnum.
Við val á borgum var m.a. litið til fjölda skráðra ferðaheildsala og endursöluaðila á svæðunum.
Fyrirkomulag:
21. maí - Austin
22. maí - Atlanta
23. maí - Boston
Fundir verða bókaðir fyrir fram í gegnum Converve fundarbókunarkerfið.
Verð:
Verð fyrir vinnustofurnar fer eftir fjölda skráðra fyrirtækja og eru eftirfarandi:
Fyrir 8 fyrirtæki: ISK 830.000.-
Fyrir 10 fyrirtæki: ISK 665.000.-
Fyrir 12 fyrirtæki: ISK 550.000.-
Innifalið í þátttökugjaldi er:
Fundarborð
Upplýsingar um markaðinn
Veitingar á meðan vinnustofum stendur
Athugið að þátttakendur sjá sjálfir um að bóka flug og gistingu og að sá kostnaður er ekki innifalinn í verði vinnustofunnar.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnarsdóttir, oddny@islandsstofa.is.