Okkar verkefni

Verkefni

Verkefni

Íslandsstofa starfrækir sértæk atvinnugreinatengd markaðsverkefni á bæði neytendamörkuðum og fyrirtækjamörkuðum.

feature image

Saman í sókn

Markmið verkefnisins Ísland - Saman í sókn er að auka eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina á miklum umbrotatímum.

Lesa meira

feature image

Green by Iceland

Hlutverk Green by Iceland er að kynna Ísland sem leiðandi land á sviði sjálfbærni með áherslu á nýtingu endurnýjanlegrar orku. Stóra markmiðið er að auka útflutning á þekkingu og grænum lausnum frá Íslandi.

Lesa meira

Norræna svæðið á Heimssýningunni í Osaka 2025

Heimssýningin í Osaka 2025

Ísland tekur þátt í samnorrænum sýningarskála á heimssýningunni í Osaka í Japan árið 2025 ásamt Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Áhersla verður lögð á að kynna grænar lausnir frá Norðurlöndum.​

Lesa nánar um þátttöku Íslands

feature image

Seafood from Iceland

Meginmarkmið Seafood from Iceland verkefnisins er að auka virði og útflutningsverðmæti með því að auka vitund og bæta viðhorf markhóps gagnvart íslenskum sjávarafurðum. 

Verkefninu er einnig ætlað að kynna íslenskan uppruna og auka jákvæðni til íslenskra sjávarafurða.

Lesa meira

feature image

Meet in Reykjavik

Ráðstefnuborgin Reykjavík - Meet in Reykjavik var formlega sameinuð Íslandsstofu í september 2020 og er nú rekið sem sjálfstætt verkefni þar.

Meet in Reykjavík - Iceland Convention Bureu, styrkir ímynd Íslands og Reykjavíkur sem eftirsóknarverðs áfangastaðar fyrir ráðstefnur, fundi, hvataferðir og alþjóðlega viðburði.

Lesa meira

feature image

Film in Iceland

Hlutverk Film in Iceland er að kynna lög um 35% endurgreiðslu af framleiðslukostnaði fyrir erlendum kvikmynda- og sjónvarpsframleiðendum annars vegar og hins vegar að kynna Ísland sem ákjósanlegan tökustað.

Lesa meira

feature image

Inspired by Iceland

Inspired by Iceland: North America er markaðs- og kynningarverkefni aðila með hagsmuni á mörkuðum í Norður-Ameríku.

Lesa meira

feature image

Heimstorg

Heimstorg Íslandsstofu er upplýsinga- og samskiptagátt fyrir íslensk fyrirtæki sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum og víðar.


Á heimstorgið er einnig hægt að sækja sérþekkingu, stuðning og leiðbeiningar um að hrinda hugmyndum í framkvæmd.

Lesa meira

feature image

Reykjavik Science City

Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að Ísland verði eftirsóttur staður til rannsókna, þróunar og fjárfestinga auk þess að laða erlend fyrirtæki og sérfræðinga til landsins. Verkefnið var kynnt formlega til leiks í nóvember 2021.

Lesa meira

feature image

Skapandi Ísland

Með Skapandi Íslandi er blásið til sóknar utan landsteinanna til að kynna íslenska tónlist, myndlist, bókmenntir, kvikmyndir, sviðslistir og hönnun.


Verkefnið var sett á laggirnar árið 2021 og verða lagðar til níutíu milljónir króna árlega til og með ársins 2025 í fyrsta áfanga þess.

Lesa meira

feature image

Horses of Iceland

Markaðsverkefni um íslenska hestinn er samstarfsverkefni hagsmunaaðila í greininni, Íslandsstofu og stjórnvalda og hefur verið verið starfrækt frá 2015. Verkefnið hefur undanfarin ár verið í víðtæku samstarfi við tæplega 60 aðila í hestageiranum og tengdum greinum.

Lesa meira

feature image

Visit Iceland

Á Visit Iceland má finna upplýsingar um flest sem viðkemur ferðalögum til Íslands, upplýsingar um landshluta, gistimöguleika og afþreyingu, ábyrga ferðahegðun og ýmsan annan fróðleik um land og þjóð. Vefurinn er samstarfsverkefni Íslandsstofu, Ferðamálastofu og ANR.

Lesa meira

feature image

Grænvangur

Hlutverk Grænvangs er að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við markmið um kolefnislaust Ísland árið 2040.

Lesa meira

feature image

Icelandic

Íslandsstofa hefur umsjón með daglegum rekstri félagsins Icelandic Trademark Holding ehf. (ITH) sem er í eigu íslenska ríkisins. ITH er eigandi vörumerkjanna Icelandic og Icelandic Seafood sem eiga sér langa sögu og standa fyrir hágæða íslenskt sjávarfang.

Lesa meira

feature image

Work in Iceland

Tilgangur Work in Iceland er einnig efla og styðja við markaðssetningu á Íslandi sem eftirsóknarverðum stað í þeim tilgangi að laða fólk með sérfræðiþekkingu á ýmsum sviðum til landsins.

Sjá vef Work in Iceland

Markaðsverkefni