Dagsetning:
6. apríl 2024
Vinnustofa í Hamborg
Skráningarfrestur er til 5. apríl
Íslandsstofa skipuleggur í samstarfi við Norðurlöndin vinnustofu í Hamborg þann 19. september nk. Á vinnustofunni gefst fyrirtækjum tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum við ferðaþjónustuaðila á staðnum. Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Visit Denmark, Visit Finland, Visit Norway og Visit Sweden.
Fyrirkomulag:
Vinnustofan stendur yfir frá kl. 09.00 - 17.30 og verða fundir bókaðir fyrirfram í gegnum Converve fundarbókunarkerfið.
Verð og skráning:
Kostnaður við þátttöku verður að hámarki kr. 190.000 kr. á fyrirtæki.
Innifalið í þátttökugjaldi er:
Fundarborð
Rafræn skráning
Kynning fyrirtækis á vefsíðu vinnustofunnar
Upplýsingar um þýska ferðaheildsala sem skrá sig til þátttöku
Hádegisverður á vinnustofu
Léttur kvöldverður 18. september með kaupendum
Athugið að þátttakendur sjá sjálfir um að bóka flug og gistingu og er sá kostnaður ekki innifalinn í verði vinnustofunnar.
Skráning:
Áhugasamir um þátttöku eru beðnir um að fylla út skráningarform hér fyrir neðan fyrir 5. apríl nk. Athugið að skráning er bindandi.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnarsdóttir oddny@islandsstofa.is