Dagsetning:
17. janúar 2024
Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu
Með áherslu á sjálfbærni áfangastaðarins
Hvenær: 17. janúar kl. 9:30-12:00
Húsið opnar 9:30 með kaffiveitingum, dagskrá hefst kl. 10:00
Hvar: Gróska, Bjargargata 1, stóri salur
Framkvæmdaaðili: Íslandsstofa og Íslenski ferðaklasinn
Íslenski ferðaklasinn og Íslandsstofa hafa umsjón með degi Ábyrgrar ferðaþjónustu sem að þessu sinni verður með sérstaka áherslu á sjálfbærnisögur áfangastaðarins. Á þessum degi lítum við um öxl og skoðum hvað fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa verð að gera til að ná enn lengra fram á veginn í sjálfbærni ferðalaginu. Forseti Íslands er verndari sérstakra hvatningaverðlauna sem veitt verða. Dómnefnd mun velja fyrirtæki sem þykja skara fram úr þegar kemur að því að tengja við sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna, fjögur megin markmið ábyrgrar ferðaþjónustu, hringrásarhagkerfið og innleiðingu nærandi ferðaþjónustu í rekstri sínum. Við munum fagna saman sigrum og fá innblástur af enn öflugri vegferð í átt að sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu.
Dagskrá:
Forseti Íslands afhendir hvatningaverðlaun ársins
– Guðni Th. Jóhannesson, forseti ÍslandsNý Markaðsstofa verður til – Byggð á grunni sjálfbærni
– Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisinsSjálfbærnisaga áfangastaðarins Íslands
– Lína Petra Þórarinsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá ÍslandsstofuHvað svo? Hvernig glæðum við sögurnar lífi
– Auður Ösp Ólafsdóttir, sérfræðingur í upplifun viðskiptavinaBláa Lónið kynnir sína sögu
– Fannar Jónsson, gæðastjóri Bláa LónsinsÁr nærandi ferðaþjónustu
– Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska Ferðaklasans
Fundarstjóri er Hildur Björg Bæringsdóttir, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu
Þessi viðburður er hluti af Ferðaþjónustuviku 2024, nánari upplýsingar hér.