Dagsetning:
6. febrúar 2024
Sendiherra Íslands í Þýskalandi til viðtals
Leynast tækifæri í Þýskalandi?
María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Berlín, verður til viðtals þriðjudaginn 6. febrúar kl. 9-14 um viðskiptamál, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál þar sem sendiráðið getur orðið að liði. Auk Þýskalands er Tékkland í umdæmi sendiráðsins.
Fundirnir fara fram í gegnum Teams og hægt er að bóka viðtal með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir, adalheidur@islandsstofa.is.