Dagsetning:
16. janúar 2024
Ferðaþjónustuvikan
16.-18. janúar
Dagarnir 16.-18. janúar 2024 verða helgaðir ferðaþjónustu. Þá verður lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar. Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.